Psalms 9

1Til söngstjórans. Almút labben. Davíðssálmur. 2Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. 3Ég vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti. 4Óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu. 5Já, þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, setst í hásætið sem réttlátur dómari. 6Þú hefir hastað á þjóðirnar, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og ævi. 7Óvinirnir eru liðnir undir lok _ rústir að eilífu _ og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin. 8En Drottinn ríkir að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms. 9Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum. 10Og Drottinn er vígi orðinn hinum kúguðu, vígi á neyðartímum. 11Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita. 12Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Síon, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna. 13Því að hann sem blóðs hefnir hefir minnst þeirra, hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu: 14,,Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans, 15að ég megi segja frá öllum lofstír þínum, fagna yfir hjálp þinni í hliðum Síonardóttur.`` 16Lýðirnir eru fallnir í gryfju þá, er þeir gjörðu, fætur þeirra festust í neti því, er þeir lögðu leynt. 17Drottinn er kunnur orðinn: Hann hefir háð dóm, hinn óguðlegi festist í því, er hendur hans höfðu gjört. [Strengjaleikur. Sela] 18Hinir óguðlegu hrapa til Heljar, allar þjóðir er gleyma Guði. 19Hinum snauða verður eigi ávallt gleymt, von hinna hrjáðu bregst eigi sífellt. 20Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu. [ (Psalms 9:21) Skjót lýðunum skelk í bringu, Drottinn! Lát þá komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn. [Sela] ]
Copyright information for Icelandic